|
|
21.09.2006 19:11:01 / Inga Dis
Ég er flutt..... http://ingadis.bloggar.is/
»
08.08.2006 21:08:57 / Inga Dis
Allt fínt að frétta af ingu bara, snilldar versló búin og
lærdómurinn að taka við, eitthvað er það ekki það sem maður nennir
svona á sumrin en svona er þetta bara...stærðfræði og Eðlisfræði
fátt skemmtilegra 
Já Skellti mér á Neistaflug um versló og bendi ykkur á
ferðasöguna á http://www.blog.central.is/nordanpiur í
boði Rósu Maríu 
Það gengur allt sinn vanagang hjá okkur Magnatjellum, erum
efstar í deildinni eins og er og erum að fara spila við Völsung á
fimmtudaginn kl:1900 á Grenivík, hálfgerður úrslitaleikur þar á
ferð, þar sem við eigum 3 stig á þær, ef við vinnum erum við langt
komnar með það að fara í úrslitakeppnina, þannig að endilega skella
sér í smá rúnt á fimmtudaginn og sjá "litlu" rassana okkar hristast
hahahaha
Vinkonur mínar eru vafalaust mjög frjósamar og er það mikil
gleði og tveir litlir frábærir einstaklingar á leið í heiminn þar,
enda foreldrarnir ekki af verri endanum., allir
snillingar Til hamingju með það öll Veit
ekki af hverju en Moli þjálfari sagðist halda að ég væri
næst....nei halló, verð ég ekki að ná mér í mann fysrt, eða vonandi
verður það þannig allavega Svo eignaðist Sóley vinkona
litla prinsessu um daginn, hlakka til að kíkka á gelluna næst þegar
leiðin liggur í borgina
Er búin að fá vinnu með skólanum í vetur, það er magnað, hef
reyndar undanfarin ár bara verið að þjálfa meðfram skóla og
handbolta, þannig að það verður nóg að gera hjá minni í vetur en
það er fínt bara, þá hef ég eitthvað fyrir stafni, skóli, vinna og
handbolti Mér finnst reyndar gott að hafa nóg að gera
 Og meiri peningar sem er mikið gleðiefni enda mikill spreðari
hér á ferð
Jæja nóg í bili...flottir Arsenal að vinna 3-0...bara svona
minna ykkur hina vitleysingana á það 
»
21.06.2006 10:24:17 / Inga Dis
Jæja aðdáendur mínir eru gjörsamlega að fara af límingunum
þannig að ég verð nú að gera þeim til geðs og blogga
 
Lífið gengur sinn vanagang bara, fer í slag við vekjaraklukkuna
mína, mæti í vinnu og tækla yndislegu litlu brjálæðingana mína,
skelli mér í rækt í baráttu við aukakílóin, fótboltaæfing þar sem
slagur um boltann er númer eitt, tvö og þrjú, heima er ég alltaf í
sífellum tæklingum við ruslið í herberginu mínu, en ruslið tæklaði
mömmu um daginn og gamla fór í hanskana og dustaði rykið af
hj´alitla barninu sínu hahaha , úff borða þar á ég sko í
feitum slagsmálum við holla matinn og ég vinn sko alltaf, enda
eitthvað minna hollt sem fer í minn maga, en vonandi að holli fari
að vinna mig fljótlega, tv uhhm elska stóra sjónvarpið mitt og fer
ekki í neinn slag þar nema stundum bara þegar ég vill horfa á marga
þætti í einu en þá er líka gott að eiga sjónvarp eins og mitt hægt
að horfa á tvennt í einu og svo síðast en ekki síst svefninn og
ekki tæklaði hann mig í nótt ég bara ætlaði aldrei að geta sofnað
og var alltaf að vakna í nótt og er því ekki jafn hress og vanalega
í dag en það bjargast þegar líður á 
Pálan mín var að útskrifast um helgina til hamingju með það
dosíið mitt skelltum okkur í höllina klukkan hálf tíu um
morguninn, oft verið hressari viðurkenni það, en hléæfingarnar hans
Jóns Más björguðu mér alveg, eða ekki bara kannski kannski
hjálpuðu þeir sumum, enda ekki tók þetta stuttan tíma, svo tók
veislan við og ekki annað hægt en að hafa gaman af enda einn
snillingurinn á færut öðrum í þessari fjölskyldu minni...allir
horfðu á leikinn saman reyndar þreift fyrir framan 4 sjónvörp en
þvílíka stuðið og lætin hafa ekki verið í trölló síðan siggi hélt
upp á afmælið sitt forðum daga Svo var það höllin
aftur, matur og læti, fín skemmtiatriði og fleira...svo var það
bara djammið sem endaði ekki betur en það að það skeit fugl á mig
og ég var læst úti en pabbi reddaði því með því að skríða inn um
gluggann...hahahaha flottur gamli 
Settið er farið til Spánar þannig að við systur erum home alone,
það er fínt en væri nú reyndar meira til í að sitja á bakkanum, en
við erum bara að spá í að skella okkur út í haust
systurnar Frjáls framlög vel þegin
hahhaaa 
Vóhh þetta er bara orðið massa blogg, bara næstum eins langt og
já olíuheilunum vinum hennar Birnu hahaha (varð að koma þessum
heilum að)
Það er útilega helgina 1-2 júlí, allir að skella sér í
lopapeysuna og regnbuxurnar binda á sig skóna, búsa sig upp og mæta
á svæðið... Þar verða allar svakalegustu gellur norðursins og
jafnvel annara landshluta líka hahaha haha:
Ingan kveður með sól í hjarta...nei andsk.. það er ekkert sól
úti ok með ský í hjarta
»
02.06.2006 00:41:06 / Inga Dis
Ohh já ég bara virkilega held að sumarið sé að koma
Allavega búið að vera mjög gott núna undanfarið og þá líður ingu
vel Þið sem þekkjið mig vitið að mér er ALLTAF kalt,
þannig að það eru komin jól aftur og ingu loksins orðið
heitt 
Íþróttaskólinn minn fer alveg að byrja, bara á þriðjudaginn, það
er bara allt að verða klárt (aldrei verið eins vel skipulagt og
núna) sem er bara gott mál Þetta verður örugglega hörku
sumar, 3 hrausti karlmenn og svo Eddulíus að vinna með mér, það
verður fínt að púla strákunum út, elska að skipa fyrir hahahahaha
er samt ekkert svona leiðinleg sko, bið voða fallega Hlakka
bara til að tækla þetta, tékkið samt í mér í ágúst og ath hvernig
hljóðið er þá hahahahaha
Ég var að passa Auðli litlu rúsínu í dag á meðan Eva fór að láta
græja á sér hárið, og jésús minn hvað hún er mikið rassgat, fór með
hana í bakaríið og manneskjan veit sko hvað hún vil, (kona að mínu
skapi), ég í sakleysu mínu keypti allsberan kleinuhring handa henni
og einn með kókos handa mér (ok halló Inga mín maður gerir ekki
svoleiðis) en allavega Auður vildi sko ekki sjá þennan allsbera
heldur borðaði kókos donotinn minn Alveg ánægð með hana,
ég var samt ekki alveg jafn ánægð með hana þegar hún kúkaði á sig
(og aftur þið sem þekkjið mig vitið að ég skipti ekki á kúkableyju
bara hreinlega get það ekki) En mín dó ekki ráðalaus heldur brunaði
heim til Ömmu og hún reddaði þessu fyrir mig, ég og Audda litla blö
röltum svo um bæinn og rúsínan bankaði á allar hurðir, bara tékka
hvort einhver væri heima, við vorum eins og rónar fyrir utan kaffi
akureyri að banka á fullu hahahahahaha Svo ullaði hún
bara okkur...ohh hún er æði, en helvíti var nú gott að geta svo
bara skilað barninu, þetta er sko meira en að segja það
Ég var að vinna upp í ka í kvöld, það var leikur sem mínir menn
töpuðu heldur illa, en sumir menn eru hreint óþolandi, nefni engin
nöfn, heyrði mjög ljóta sögu eftir leikinn, ég veit ég meina ég er
alveg með skap og allt það og sagt allann fjandann og gert
ýmislegt, en halló í fótboltaleik þá gerir maður ekki svona og hvað
þá ef maður er að vinna...ljótt ljótt ljótt hata svona...
jæja ætla fara horfa á L-word....snilldar þættir...
hei koma svo útilega í vagló föstudaginn 7, júlí og svo heim á
laugardag og þá vonandi sálin í sjallanum allir
með 
er þetta málið?????
Það eitt að gefa einhverjum alla okkar
ást tryggir ekki að viðkomandi elski okkur á móti. Ekki búast við ást í skiptum
fyrir ást; bíddu þangað til ástin vex í hjörtum annarra og ef það gerist ekki,
skaltu
þakka fyrir að ástin hafi vaxið og dafnað í þínu
hjarta.
»
27.05.2006 18:50:39 / Inga Dis
»
25.05.2006 23:09:48 / Inga Dis
já greyin í Fjarðarbyggð voru það í bókstaflegri merkingu.
hahahahahahaha Við unnum s.s. 7-1.. Byrjaði
reyndar heldur illa, eða þær komust í 0-1 en Magna tjellur kunna
svo sannarlega að taka sig saman í andlitinu og við jöfnuðum held
ég bara eftir 1 eða kannski 2 mínútur og svo kom annað og annað og
annað...hálfleikur 4-1, ljúft var inn í klefa...gamanið hélt svo
áfram eftir hálfleik, ingan náði ekki að setja mark sitt á leikinn
og Moli bara tók mig útaf á 56 mínútu og ég var að sjálfsögðu ekki
sátt með það, hata að vera tekin út af, en við setjum okkur víst út
með það að allir fái að spila og bara hafa gaman af, en það er
erfitt fyrir svona vitleysinga eins og mig En samt mjög
mjög gaman og gott að byrja vel Það var alveg einn og einn að
horfa og það var bara gaman...
Svo hef ég ákveðið að kjósa atvik leiksins og þó svo að mörg
snilldaratriði hafi átt sér stað, Birna t.d. tók blakskutlu og
skoraði algjör snilld, Dæja skíðapæja varði víti en Þóra mín
Pétursdóttir á án efa atvik leiksins, ég er viss um að dómarinn sé
ennþá hræddur og hvað þá greyið
fjarðarbyggðarsveitasaklausastelpugreyið hahahahahaha nei nei smá
ýkt en allavega mjög fyndið og það komu upp gamlir taktar í
stúlkunni frá því að hún var 3 ára held ég 
Svo enduðum við á nýjum slagara...moli moli moli moli moli hei
hei hei moli moli moli moli moli hei hei hei moli hei moli hei moli
moli moli moli moli hei hei hei....Fæ vonandi að taka moli moli
oftar en ziggi ziggi í handbollen 
Er að horfa á sænsku nördana og þetta er svo mikil snilld,
kannski erum við magnagirls bara svona,.....nei halló þeir tapa
alltaf við vinnum 
Ef þú hefur áhuga á að bóna bílinn minn, láttu mig þá bara vita,
minn er kominn á tíma og fyrir löngu síðan... 
Við erum flugvél stelpur
»
25.05.2006 14:06:04 / Inga Dis
Já takk fyrir fyrsti leikur í dag klukkan 18:00 í boganum,
endilega fólk fjölmenna og hvetja okkur gellurnar, þurfum á því að
halda enda mjöööög langt síðan sumar spiluðu alvöru fótboltaleik
 
Var að renna í hlað bara áðan, það var rosa stuð á keppninni og
ægilega gaman að sjá hvað skvísan mín stóð sig
vel ALgjör hetja
Jæja ætla fara undirbúa mig hahahaa
ingan
»
16.05.2006 11:32:06 / Inga Dis
»
11.05.2006 19:23:48 / Inga Dis
»
30.04.2006 00:02:14 / Inga Dis
Já ég er að krebera hérna megin...ekki að nenna læra meira í
dag, enda dagurinn nánast búinn, fer að svífa fljótlega inn í
draumalandið, það virðist allt ganga betur þar en hérna megin
Allavega hef átt góða drauma upp á síðkastið, fyrir utan þessa þarf
sem ég er alltaf að brjóta fínu neglurnar mínar og alltaf sömu
tvær, er verið að reyna segja mér eitthvað eða????
Ég og Birnan mín vorum ógó duglegar í dag, skelltum okkur í
ræktina góðu og ekki nóg með það heldur brunuðum við á
línuskautunum okkar, ´jújú það var fínt nema hvað að það var
svo hvasst að við þurftum að skauta niður brekkurnar líka, því
mótvindurinn var svo mikill að við gátum bara ekki látið okkur
renna Birnan fór létt með þetta, enda vön þessum hreyfingum
af hokkýinu, ég hins vegar kúkaði næstum því í buxurnar, hélt
bara að ég hefði þetta ekki, en seig sú gamla Við
meikuðum svo reyndar ekki að skauta heim, þannig að nokkrir
myndarlegir herramenn náðu í okkur og björguðu okkur, eða allavega
mér frá gröfinni Takk fyrir það strákar mínir 
Fótboltaæfing í bítið, ekki ísland samt, bara magnagellzzz ok
þessi var ömurlegur ég veit, er bara komin í einhvern galsa....
Já það grillveisla í trölló í gær, konni og eva, harpa og siggi
og dísa og rósberg mættu á svæðið og svo var endað gott partý á
trivial, kk á móti kvk og við dömurnar fórum með sigur af
hólmi....Mamma átti án efa fítus kvöldsins...söngvari sem var
uppgötvaður á karlaklósetti eða eitthvað alíka man ekki alveg,
gamla michel jordan....gott fellarinn minn...úpps harpa sagði
nebbla michael eitthvað og mamma alveg eldsnögg og var alveg með
þetta... 
Ef þið viljið vita um eitthvað frá þroska fósturs til áhrif
ofbeldis úr sjónvarpi á börn eða bara jafnvel skilnaða foreldra til
málþroska, hafiði þá bara samband við inguna, hún er með
þetta 
Farin í draumalandið góða, þar sem nánast allt er alltaf gott,
vonandi brýt ég samt engar neglur 
»
27.04.2006 23:21:19 / Inga Dis
Já FC Z það er bara snilld, var að horfa á sænska
fótboltaþáttinn um FC Z sem er fótboltalið með gaurum sem hafa
aldrei verið í fótbolta áður, eru ýmist skátaforingjar,
eðlisfræðigúrúar, rokkarar og ýmislegt annað Þeir voru
áðan að gera þrautir sem 7 til 9 ára krakkar fara létt með og ég
grenjaði úr hlátri á meðan  Þetta var svooo fyndið, svo átti
aðeins að herða gaurana og þeir voru sendir til boxþjálfara, einn
labbaði út og einhverjir fóru að grenja og þá meina ég í alvörunni
að grenja....æi þetta var bara mesta snilldin, svo eru þeir búnir
að spila 3 leiki, einn við 14 ára stelpur sem þeir töpuðu, annan
við lélegasta liðið í deildinni og töpuðu og svo við old boys lið
Djurgården sem btw var með einn 68 ára innanborðs og töpuðu honum
líka...greyin en þetta er vonandi allt að koma hjá þeim, endilega
fylgjast með þeim á sýn á fimmtudögum kl 2100 SÆNSKU NÖRDARNIR
 
Það var fótboltaæfing hjá hja Magna girls...og eins og venjulega
mesta snilldin í gangi þar, vorum á oddeyrarskólavelli í kvöld
sem er stærri en brekkuskólavöllur og var bara mjög gaman.. ég er
bara ótrúlega spennt fyrir sumrinu og ég er 100 % viss um að
við myndum vinna FC Z  
Allt að gerast, öll verkefni fullunnin og þá tekur próflesturinn
við jibbýý  Og það er spáð 15 stiga hita og sól á
morgun, Takk Guð ég elska þig líka, en ætla nú ekkert að kvarta
yfir sólinni, ég meina það er ekkert gaman að hanga inni og þurfa
að læra en ég er svo hugulsöm að það er frábært fyrir ykkur sem
ekki eruð í prófum að fá smá sól og hita í kroppinn
Segiði svo að ég hugsi ekki um aðra en sjálfa mig give me
a.....
ætla enda þetta á einni klassíker frá spáni síðasta
sumar....Are you the man in the car?????
»
25.04.2006 12:25:27 / Inga Dis
ég var búin að gleyma því hvað það er ógeðslega gaman í
fótbolta Ég skellti mér á æfingu í gær, ég og Birna gella vorum
í flottustu skónum það er nokkuð ljóst....enda keyptir í útlandinu
nánar tiltekið USA Við vorum á brekkuskólavellinum og við
skemmtum okkur konunglega og var mikið um snilldartilþrif, Stefanía
á þó án efa tilrif kvöldsins þ.e.a.s. óhljóðin sem komu alltaf
þegar hún varði snilldarlega í markinu  Æi það var samt
svo mikið af allskonar tilþrifum, þetta var bara mesta snilldin og
ég bíð spennt eftir næsta hitting sem er á miðvikudaginn, þannig að
þið se viljið sjá alvöru konur í alvöru fótbolta mæta bara í
brekkuskóla á miðvikudaginn klukkan 1900....eða ekki bara
hahahaha
Það styttsist allsvaðalega í prófin og er allt á fullu núna,
klára öll verkefnin sem eftir eru, finna það efni sem er til prófs,
prenta út gömul próf og ýmislegt annað sem þarf að gera.....btw
kaupa kók og ekki má gleyma namminu hahaha Siggi þú
getur kíkt í heimsókn og séð herleg heitin
Páskarnir voru bara fínir, ótrúlega rólegir samt sem áður, ég
lét mjög lítið fyrir mér fara á djamminu, kíkti reyndar út öll
kvöldin en var oftast komin í bedda ekki seinna en 3,
geri aðrir betur Ég var bara ekkert alveg með þetta þessa
páskana...ÉG skellti mér á skíði tvisar sinnum, og það kom mér
ótrúlega á óvart hvað ég var seig, ég meina það voru ekki nema 10
ár eða svo frá því að ég fór síðast og gellan bara brunaði, eða já
rann allavega niður brekkurnar án þess að detta...já takk þetta
getur maður Fór samt ekkert í strýtuna í þetta skiptið, enda á
ég ekkert góðar minningar þaðan hahahahaha Svo áttu páskarnir
að fara í lærdóm líka, en nei eitthvað fórst það fyrir, en það er
svo sem allt í góðu lagi, það reddast alltaf allt...og á morgun
segir sá lati....ÉG skellti mér í leikhús, það var ungur drengur
sem bauð okkur Þóru í leikhús, algjor snilldargaur þar á ferð, og
hann bað okkur þóru vinsamlegast að haga okkur vel og vera ekkert
að öskra, hann var ekki alveg til í að vera með einhverjum svona
hallæris gellum, við fórum nottla bara eftir því sem herramaðurinn
sagði og vorum mjög stilltar og penar í leikhúsinu 
Svo fékk ég páskaegg í afmælisgjöf frá henni þóru minni og
málshátturinn minn var svohljóðandi: Lengi getur fullur étið og
latur legið.....mömmu minni fannst þetta eiga ógeðslega vel
við mig, ég bara skil þetta ekki, ég meina ég lá upp í rúmi með
nammiskálina á bringunni þegar ég las þetta fyrir hana....ok þetta
er ég í hnotskurn það er bara þannig og ég er bara stolt af því að
borða mikið og vera löt...get samt líka verið dugleg sko, við
skulum ekkert gleyma því neitt
Svo er það bara meistardeildin í kvöld....úffúff við verðum að
vinna, það væri svo geggjað að komast áfram, éf ég væri milli þá
væri ég að fara til Parísar á úrslitaleikinn það er að segja ef
Arsenal kemst áfram, en nei Inga mín þú ert víst enginn milli, en
ef einhver bíður sig fram í að bjóða mér, þá er það bara
guðvelkomið, ég er mjög skemmtilegur ferðafélagi og það er enginn
betri aðstoðarökumaður en ég, spurjiði bara pabba minn, ég kom
okkur á réttan stað á Spáni síðasta sumar
Jæja þetta er að verða gott, ég á milljón myndir sem ég tók á
nýja myndavélina mína sem bíða þess að komast hérna inn, það gerist
væntanlega í miðri prófatörn, þar sem oft er vinsælt að gera
eitthvað þá sem maður nennir oftast ekki annars...
go go gunners....  
»
13.04.2006 11:42:59 / Inga Dis
»
04.04.2006 20:49:13 / Inga Dis
Tíminn líður hratt Já það eru orð að sönnu, gamla settið
er að koma heim á morgun og ingan búin að vera sveitt að þrífa
síðustu 2 tímana eða svo  Ekki að það hafi verið mikið að
þrífa, enda ég með eindæmum mikill snyrtipinni Ekkert komment á
þetta takk Þvottavélin er líka búin með helvíti marga
snúninga í dag, enda var ingan alveg að verða fatalaus og því ekki
seinna vænna en að bjarga því
Við spiluðum síðasta leikinn okkar í vetur, töpuðum honum eins
og okkur einum er lagið...Báðir þjálfararnir okkar voru í banni,
merkilegt þetta fólk sem fær rautt spjald Við vorum reyndar
ekki þjálfaralausar, þó svo að ákveðinn þjálfari hafi beilað á
okkur Hreinsi stóð sig bara vel, kallinn Íbv og
útlendingahersveitin er íslandsmeistari, til hamingju með það, til
lykke, splendito (smá húmor í gangi) Valur í öðru og Svo Haukar með
Mörtuna mína innanborðs í þriðja + bikarmeistarar Við í já
tölum ekkert um það...
Sara Ísfold litla yndislega krúttúlínu frænka mín er 8 ára
í dag, til hamingju elsku Sara mín með það og Svo er Guðrún Helga
22 ára í dag Til hamingju með þetta frænkurnar
mínar...Eyrún átti svo afmæli í gær og Sigga á morgun, það eiga
bara allir afmæli þessa dagana
Skólinn er alveg á fullu þessa dagana og sem betur fer er ekki
kladdi eins og í framhaldsskóla því þá væri ég fallin á mætingu og
gott betur en það, heimaskóli á betur við mig Mér til mikillar
skelfingar var próftöflunni minni breytt og ég er þokkalega pist
með það Helvítis leikskólabrautin var eitthvað að brasa í því
að fá þessu breytt og bara já breytum henni fyrir þessar 6 hræður
sem eru þar, ekkert illa meint en kemur sér bara mjög illa fyrir
okkur 
Ég kíkti á djammið á laugardaginn, var frekar róleg á því bara,
Haddsi bauð upp á mjöð á leiðinni heim og var skellt í sig, svo
loksins þegar við vorum komnar á akureyris þá varð maður bara svona
nettur, ég var eiginlega bara til í að fara sofa, en nei það var
ekki í boðinu sko þannig að ég græjaði mig og stefnan sett á Kaffi
Akureyri, stoppaði reyndar ekkert mjög lengi, vorum aðeins á
röltinu og svo bara í leigubílaröðina í 300 þúsund mínus gráðu
kulda, djöfull var mér ógeðslega kalt, ég var ekkert smá lengi að
þiðna þegar ég kom heim, alveg klesst uppvið ofninn og með báðar
sængurnar mínar on top of me....hefði alveg mátt vera eitthvað
annað en sængur hahahahahaha Allvega sofnaði svo frekar
seint, en svaf svo eins og steinn eftir það 
úff þetta er orðin bara lengsta færslan, en bara enjoy coca
cola 
Ingan farin að brjóta saman úr þurrkaranum og jafnvel skipta á
rúminu, enda ekkert betra en að sofna í nýáskiptu rúmi, eða
rúmfötum frekar 
»
29.03.2006 10:53:01 / Inga Dis
Já ég fékk sko aldeilis frábæra afmælisgjöf í gær, liðið mitt,
besta liðið sko, Arsenal tók Juventus (sem reyndar er mitt lið
líka, en ekkkki í gær) í þurran afturendan  
ógeðslega var ég ánægð með þá Og svo verður Vieira ekki með í
næsta leik, og hann lét hafa það eftir sér að hann yrði meistari
með Juventus, eitthvað sem hann gæti aldrei með Arsenal, ok kemur
kallinn minn hahahahahahahahaha Ég er alveg með þetta
sko, Arsenal fer bara alla leið með Ingó úr idolinu í markinu (þeir
eru sko bara alveg eins) og Henry sem er nottla bara bestur í heimi
eins og Thule (ekki að mér finnst samt)  ok ég er komin í
ruglið í þessu....hætt bara í bili....en allavega go go
Gunners 
Stelpan er bara orðin ein í kotinu, gömlu farin á Kanarí og
Dröfnin farin suður að beutyast Ok þau fóru í gær og ég er
strax orðin einmanna, ég bara skil ekki hvernig ég fór að þessu
þarna í ógeðis reykjavík hahaha ég var alltaf eitthvað að vakna
í nótt og eitthvað...en það reyndar gæti líka stafað af draumunum
mínum, já mig dreymdi nebbla nokkra, ég er sko farin að hafa
áhyggjur af öllum þessum draumum, á maður að taka eitthvað mark á
þessu, eða hvernig er þetta??? Ég meina þetta er alltaf svo
raunverulegt, en stundum samt svo sárt, því þetta er eitthvað sem
maður alls ekki vill.....svo eru líka til allskyns draumráðningar
og hvað á maður bara að trúa því, á ég að fara lifa eftir
draumráðningabókinni.....held ekki, enda dreymir mig alltaf
eitthvað crap Vonandi bar hættir mig að dreyma, þetta er
ekkert gaman, ok ef það er ekki hægt að hætta dreyma þá vil ég fá
fallega drauma takk....ekki svona drauma sem maður vaknar upp alveg
í kasti og veit ekkert hvað er að gerast, svo hugsar maður þetta
alveg lengi á eftir.....þetta er ógó vont 
Ok nú hugsið þið, er stúlkan að missa sig, en nei nei enginn að
missa sig hér, aldurinn er bara farinn að færast yfir mig Það
er samt ekkert slæmt að vera 23 sko, bara nokkuð sátt með
þetta....hlakkar eiginlega bara til að takast á við þetta....þetta
hvað???? uhhumm spurning ég held að 23 ára sé aldurinn eins og
markamínútan í fótboltanum, sem ég reyndar man ekki alveg hver er
44 eða 47, allavega rétt fyrir hálfleik....já er búin að ákveða það
 
jæja ætli maður verði ekki fara byrja læra...er ekki að nenna
því samt...helvítis skóli
Ingan
»
Síður: 1 2 3 ... 9
|
|